07.07.2009 19:34
Jæja þá komst síðan í dag með flettingarnar yfir milljón sem er alls ekki svo slæmt. Að vísu er minna um heimsóknir og flettingar nú yfir hásumarið, enda fasta gestir síðunnar meira og minna á flandri.
Eitt er þó sem maður saknar, en það er að menn eru nánast hættir að tjá sig undir myndunum nema þeir sem eru að gera einhverjar athugasemdir við viðkomandi mynd. Vonandi lagast það þegar haustar og unnendur síðunnar fara að tjá sig um það sem þar er, en ekki bara með kvartanir og leiðréttingar.
Með bestu kveðju og þakkir fyrir samstarfið í tilefni af milljóninni
Síðuritarar Þorgeir og Emil Páll